Fotbolti.net
05.03.14 - 21:05
Magnús Már Einarsson

Ragnar Bragi í Fylki (Staðfest)

Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis, Ragnar Bragi og Ásgeir Ásgeirsson formaður knattspyrnudeildar.

Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis, Ragnar Bragi og Ásgeir Ásgeirsson formaður knattspyrnudeildar.

Canon

Mynd: Fylkismenn.is

Ragnar Bragi Sveinsson skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Fylki en þetta kemur fram á Fylkismenn.is. Ragnar kemur frá Kaiserslautern í Þýskalandi en hann hefur leikið með unglingaliði félagsins undanfarin ár.
,,Við bjóðum Ragnar Braga hjartanlega velkominn aftur til félagsins og væntum mikils af honum,\" segir á Fylkismenn.is.

Ragnar sem verður tvítugur í lok árs er uppalinn Fylkismaður. Hann er framherji, sem getur einnig leikið í „holunni“ fyrir aftan senterinn og leyst vængstöðurnar.

Ragnar Bragi er yngsti leikmaður til að spila leik fyrir Fylki í efstu deild, en hann var aðeins 15 ára og 269 daga gamall þegar hann kom inná gegn Breiðabliki í september 2010.

Árið 2011 keypti þýska liðið Kaiserslautern Ragnar og hefur hann leikið með unglingaliði félagsins undanfarin ár. Þá hefur hann leikið fimm leiki með U-19 ára landsliði Íslands og sjö leiki með U-17 ára landsliðinu og skorað í þeim tvö mörk.

Fylkismenn vonast einnig til að ganga frá samningi við Andrés Má Jóhannesson á næstu dögum en hann er á heimleið frá Haugesund í Noregi.

Heimild: Fylkismenn.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.