05.03.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pála Marie semur við Val (Staðfest)

Pála Marie mun leika með Val í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pála Marie mun leika með Val í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin þaulreynda, Pála Marie Einarsdóttir, er búin að skrifa aftur undir hjá Val eftir að hafa tekið sér pásu frá fótbolta.
Pála gerir tveggja ára samning við Val, en hún hefur spilað með liðinu á undirbúningstímabilinu og gert það vel.

Pála er uppalin hjá Haukum, en hefur lengst af leikið með Val. Alls hefur Pála Marie spilað 171 leik fyrir Val í efstu deild og skorað 3 mörk.
„Andrúmsloftið í kringum liðið er mjög gott og mikill metnaður hjá öllum í kringum félagið að ná góðum árangri í sumar. Félagið hefur líka verið að sækja leikmenn sem þekkja það að spila með Val og einnig aðra sem þekkja sigurtilfinninguna vel. Þjálfarateymið er líka gott og þeir setja miklar kröfur á okkur leikmennina. Það er því margt sem heillar við að vera að spila með liðinu núna,“ sagði Pála Marie í samtali við Val.is.
„Mér finnst ég í raun aldrei hafa farið enda mætt á æfingar við hvert tækifæri í pásunni sem ég hef verið í. Hjartað mitt slær fyrir mfl kvenna og hefur gert það síðan ég kom í félagið 2002. Mér finnst það forréttindi að mæta á æfingar og gera það sem ég elska, að spila fótbolta með frábærum knattspyrnukonum.“
„Ég er hægt og rólega að komast í flott stand. Það tekur að sjálfsögðu smá tíma að komast í sitt besta form þegar maður hefur verið í pásu en ég finn að ég er að ráða vel við álagið sem ég er mjög ánægð með.“

Heimild: Heimasíða Vals