05.04.13 - 09:28
Magnús Már Einarsson
Gunnar Þorsteinsson í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík
Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Ipswich, hefur gert tveggja ára samning við ÍBV.
Gunnar hefur undanfarin tvö ár verið á mála hjá Ipswich en hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá félaginu.

Þessi 19 ára gamli leikmaður þekkir vel til í Eyjum því að hann var í yngri flokkum ÍBV áður en hann fór í Grindavík.
Faðir hans, Þorsteinn Gunnarsson, varði einnig mark ÍBV á sínum tíma.
Gunnar mun hitta lið ÍBV í æfingaferð í Englandi í næstu viku en liðið fer þangað á þriðjudaginn.
Gunnar fór til Englands 2011 frá Grindavík eftir að hafa komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni. Hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands.