Fotbolti.net
05.04.13 - 16:07
Elvar Geir Magnússon

Vatnaliljurnar fá Aaron Palomares (Staðfest)

Vatnaliljurnar fá Aaron Palomares (Staðfest)
Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Fótboltafélagið Vatnaliljur hefur leikið í utandeildinni undanfarin ár en liðið tekur nú næsta skref og verður með í Íslandsmótinu í sumar, 4. deildinni.

Liðinu var að berast liðsstyrkur því Aaron Palomares hefur fengið félagaskipti úr HK. Hann lék síðast með Kópavogsliðinu í 1. deildinni 2011.
Þessi skipti eru áhugaverð fyrir þær sakir að Aaron er á 23 aldursári og á fjölmarga leiki að baki fyrir U17 og U19 landslið Íslands. Sumarið 2008 var hann fastamaður í liði HK í efstu deild, skoraði tvö mörk í 21 leik.

Vatnaliljunum virðist ekki veita af liðsstyrknum en liðið hefur tapað báðum leikjum sínum í Lengjubikarnum, 0-5 og 0-8.

Aaron lék með Vatnaliljunum í utandeildinni í fyrra en þess má til gamans geta að útvarpsmennirnir Rikki G og Heiðar Austmann á FM 957 eru meðal leikmanna liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.