Fotbolti.net
05.04.14 - 12:11
Ívan Guðjón Baldursson

Sami Hyypiä rekinn frá Leverkusen (Staðfest)

Sami Hyypiä rekinn frá Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur ákveðið að reka finnska þjálfarann Sami Hyypiä eftir slæmt gengi í síðustu leikjum liðsins.

Þetta gerðist eftir 2-1 tap Leverkusen gegn fallbaráttuliði Hamburger SV sem fyllti mælinn hjá stjórninni, enda hefur Leverkusen aðeins unnið einn leik af síðustu þrettán og gæti misst af meistaradeildarsæti vegna þess.
Leverkusen er í fjórða sæti deildarinnar sem er síðasta sætið til að gefa þátttökurétt í Meistaradeildinni, en Borussia Mönchengladbach og Wolfsburg fylgja Leverkusen fast á eftir.

Aðstoðarþjálfarinn Jan-Moritz Lichte var þá einnig látinn taka poka sinn en unglingaþjálfarinn Sacha Lewandowski tekur við taumunum þar til nýr þjálfari verður ráðinn.

,,Eftir að hafa legið í þungum þönkum komust við að þeirri niðurstöðu að þörf væri fyrir róttækar breytingar innan liðsins,\" sagði forstjóri Leverkusen, Michael Schade, í yfirlýsingu.

,,Þessi ákvörðun var gríðarlega erfið því Sami hefur unnið frábært starf hér síðustu tvö ár,\" sagði Rudi Völler, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.