Fotbolti.net
05.04.14 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Viggó Kristjánsson í Gróttu (Staðfest)

Viggó er kominn aftur í Gróttu.

Viggó er kominn aftur í Gróttu.

Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Miðjumaðurinn Viggó Kristjánsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Gróttu.

Viggó er fæddur árið 1993, en hann hefur undanfarin tvö tímabil verið á mála hjá Breiðabliki.
Sumarið 2012 var hann að hluta til á láni hjá ÍR-ingum í fyrstu deildinni en í fyrra spilaði Viggó sextán deildar og bikarleiki með Blikum.

Á dögunum æfði Viggó með ÍBV en gerði ekki samning við Eyjamenn.

Viggó hefur nú gengið í raðir Gróttu á nýjan leik en hann gæti leikið með liðinu gegn KFR í Lengjubikarnum í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.