05.04.16 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Íris Dögg í Hauka (Staðfest) - Fimm semja

Íris er komin í Hauka.

Mynd: Haukar

Íris er komin í Hauka.

Mynd: Haukar

Markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir er gengin í raðir Hauka sem leika í 1. deild kvenna á komandi leiktíð.
Íris sem er 27 ára gömul er að taka fram skóna að nýju en hún hefur ekkert spilað síðan hún var með FH sumarið 2014.
Hún hefur áður spilað með KR og Fylki. Hún á að baki 8 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.

Haukar tilkynntu einnig að fjórir aðrir leikmenn hafi samið við félagið. Kristín Ösp Sigurðardóttir sem er uppalin í Haukum og er einnig að koma aftur í boltann eftir barneign.
Þá var skrifað undir samninga við Helgu Siemsen Guðmundsdóttur, Logey Rós Waagfjörð og Natalíu Björnsdóttur sem eru allar ungir og efnilegir leikmenn.
„Haukar fagna mjög samningum við fyrrgreinda leikmenn sem félagið bindur miklar vonir við í baráttunni í 1. deild kvenna í sumar,\" segir í tilkynningu félagsins.

Frá undirskriftinni.

Mynd: Haukar