Fotbolti.net
05.04.16 - 22:41
Alexander Freyr Tamimi

Rangers snýr aftur í efstu deild (Staðfest)

Rangers og Celtic mætast í úrvalsdeildinni að nýju.

Rangers og Celtic mætast í úrvalsdeildinni að nýju.

Canon

Mynd: Getty Images

Skoska stórveldið Rangers tryggði sér í dag sigur í skosku Championship-deildinni og í leiðinni þátttökurétt í úrvalsdeildinni þar í landi á ný.

Það hefur legið nokkuð ljóst fyrir undanfarnar vikur að Rangers væri við það að tryggja sér sigur í deildinni en 1-0 sigur gegn Dumbarton í dag var nóg til að innsigla toppsætið og þar með endurkomu í deild þeirra bestu.
Rangers er með 79 stig á toppi deildarinnar eftir 32 leiki og hefur aðeins tapað þremur leikjum á tímabilinu.

Rangers, sem er sögufrægasta félag Skotlands ásamt erkifjendunum í Celtic, var sett í greiðslustöðvun árið 2011 og fellt niður um þrjár deildir. Síðan þá hefur leiðin einungis legið upp á við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.