05.04.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Adam Örn lánaður í Magna - Monakana verður áfram (Staðfest)

Adam Örn er mættur í Magna

Mynd: Magni

Adam Örn er mættur í Magna

Mynd: Magni
Penninn er á lofti hjá Magna á Grenivík. Adam Örn Guðmundsson er mættur til félagsins á láni frá KA og þá hefur Jeffrey Monakana framlengt samning sinn við félagið.
Adam Örn er fæddur árið 2001 og uppalinn í Fjarðabyggð áður en hann skipti yfir í KA fyrir þremur árum.
Hann lék tvo leiki í Pepsi Max-deildinni árið 2020 og var þá á láni hjá Fjarðabyggð í 2. deildinni á síðasta tímabili.
Adam er nú mættur til Magna á láni frá KA og mun spila með liðinu í 2. deildinni á komandi leiktíð.
Sóknarmaðurinn öflugi, Jeffrey Monakana, hefur þá framlengt samning sinn við Magna út tímabilið en hann gerði 8 mörk í 18 leikjum á síðasta tímabili.
Gunnar Berg Stefánsson, uppalinn Magnamaður, skrifaði þá undir tveggja ára samning við félagið. Hann er vinstri bakvörður að upplagi og fæddur árið 2003.