05.04.22 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Vinicius Tobias kominn til Real Madrid (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Shakhtar Donetsk er búið að staðfesta að brasilíski bakvörðurinn Vinicius Tobias er farinn á lánssamningi til Real Madrid.
Tobias er 18 ára gamall og mun leika fyrir varalið Real Madrid til að byrja með.
Varnarmaðurinn gekk í raðir Shakhtar í janúar en Rússar réðust inn í Úkraínu skömmu síðar svo hann fékk aldrei tækifæri til að spreyta sig í keppnisleik með félaginu. Hann spilaði þó nokkra æfingaleiki í febrúar og stóð sig gífurlega vel.
FIFA hefur gefið leikmönnum úr úkraínsku deildinni leyfi til að skipta um félag utan félagaskiptaglugga vegna stríðsins sem geisar.
Tobias er búinn að skrifa undir lánssamning sem gildir út júní 2023. Samningnum fylgir kaupákvæði sem hljóðar upp á 18 milljónir evra.
