Fotbolti.net
05.05.17 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Hilmar Geir í Álftanes (Staðfest)

Hilmar Geir Eiðsson.

Hilmar Geir Eiðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Álftanes í 4. deild hefur fengið kantmanninn Hilmar Geir Eiðsson í sínar raðir.

Hilmar Geir er uppalinn í Haukum og hefur lengst af á ferlinum spilað með þeim. Í fyrra og hitteðfyrra var Hilmar hins vegar á mála hjá ÍH í 4. deildinni.
Hinn 31 árs gamli Hilmar lék einnig með Keflavík í Pepsi-deildinni árin 2011 og 2012.

Samtals hefur Hilmar skorað 49 mörk í 222 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.

Í síðustu viku gekk nafni hans Hilmar Rafn Emilsson einnig til liðs við Álftnesinga. Hilmar Rafn og Hilmar Geir hafa lengi verið samherjar bæði í Haukum og svo í ÍH.

Álftanes er komið í úrslit í C-deild Lengjubikarsins en liðið mætir Skallagrími þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.