Fotbolti.net
05.06.13 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Maarten Stekelenburg til Fulham (Staðfest)

Maarten Stekelenburg til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt hollenska landsliðsmarkvörðinn Maarten Stekelenburg frá Roma.

Stekelenburg var nálægt því að ganga í raðir Fulham í janúar en hann hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Stekelenburg hóf ferilinn hjá Ajax þar sem hann lék meðal annars undir stjórn Martin Jol stjóra Fulham.

,,Það er gott að hitta Martin aftur, hann þekkir hæfileika mína vel,\" sagði Stekelenburg.

,,Ég hlakka bara til að hitta liðið á undirbúningstímabilinu og æfa með þeim áður en nýtt tímabil hefst.\"

Fulham hefur góða reynslu af hollenskum markvörðum en Edwin van der Sar varði mark félagsins áður en hann gekk í raðir Manchester United.

Heimild: Heimasíða Fulham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.