05.06.14 - 18:10
Valur Páll Eiríksson
Alex til AC Milan (Staðfest)

Alex er farinn frá PSG.

Mynd: Getty Images

Alex er farinn frá PSG.

Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Alex er genginn til liðs við ítalska stórliðið AC Milan frá Paris Saint-Germain í Frakklandi en þetta var staðfest á heimasíðu AC í dag.
Alex kemur frítt til Mílanó og rýmir þá líklega til fyrir landa sínum David Luiz sem er á leið til PSG frá Chelsea fyrir rúmar 40 milljónir punda.
Alex kom sömu leið til PSG frá Chelsea á sínum tíma og hefur myndað sterkt miðvarðarpar með Thiago Silva undanfarin tímabil og sló m.a. Mamadou Sakho út úr liði PSG sem leiddi til þess að hann var seldur til Liverpool.
Fyrir Alex liggur verðugt verkefni að koma stöðugleika á vörn AC Milan en þeir áttu sitt versta tímabil 16 ár eða síðan tímabilið 1997-98 þegar liðið lenti í 10. sæti.

Heimild: Heimasíða AC Milan