Fotbolti.net
05.06.14 - 13:00
Magnús Már Einarsson

David Villa fer til Ástralíu á láni (Staðfest)

Villa smadi við New York City á dögunum.

Villa smadi við New York City á dögunum.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski framherjinn David Villa mun leika með Melbourne City í áströlsku deildinni á láni frá október fram í desember.

Villa varð spænskur meistari með Atletico Madrid á nýliðnu tímabili en hann samdi fyrr í vikunni við New York City FC sem er nýtt félag í MLS deildinni.
New York hefur ekki leik í MLS deildinni fyrr en í mars á næsta ári og því mun Villa leika með Melbourne til að halda sér í formi.

Hinn 32 ára gamli Villa verður í eldlínunni með spænska landsliðinu á HM en það verður hans síðasta stórmót.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.