Fotbolti.net
05.06.14 - 17:49
Valur Páll Eiríksson
Ítalska deildin

Seydou Keita til Roma (Staðfest)

Seydou Keita til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma staðfestu rétt í þessu komu Seydou Keita til liðsins frá Valencia á Spáni þar sem Keita hafði verið frá því í janúar. Samningur hans rann út eftir tímabilið svo hann kemur frítt til Rómarborgar.
Keita kom til Valencia frá Kína þar sem hann spilaði 37 leiki og skoraði 10 mörk með Dalian Aerbin. Hann kom til Kína frá Barcelona þar sem hann spilaði í fjórar leiktíðir. Þar vann hann spænsku deildina þrisvar og Meistaradeildina tvisvar.

Keita samdi við Roma út næstu leiktíð en hann kemur með mikla reynslu inn í liðið, en Roma mun taka þátt í Meistaradeildinni í fyrsta skipti síðan tímabilið 2010-11.

Keita verður líklega hugsaður sem varaskeifa fyrir Kevin Strootman, Daniele De Rossi og Radja Nainggolan sem spila einnig sem djúpir miðjumenn.

Heimild: Heimasíða Roma

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.