Fotbolti.net
05.06.14 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Stramaccioni nýr stjóri Udinese (Staðfest)

Andrea Stramaccioni tekur við Udinese sem endaði í 13. sæti á síðasta tímabili.

Andrea Stramaccioni tekur við Udinese sem endaði í 13. sæti á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Udinese hefur staðfest ráðningu Andrea Stramaccioni í stöðu nýs yfirþjálfara.

Stramaccioni stýrði óvenju slæmu Inter liði í eitt tímabil og endaði með það í níunda sæti ítölsku deildarinnar og komst ekki lengra heldur en í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar og undanúrslit ítalska bikarsins.
Stramaccioni hefur þó gríðarlega mikla reynslu enda hefur hann unnið alskonar störf, oft sem tæknilegur ráðgjafi, samhliða bestu þjálfurum og knattspyrnustjórum heims.

,,Udinese hefur ákveðið að gefa Andrea Stramaccioni stjórn á aðalliði félagsins,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Udinese.

,,Samningurinn tekur gildi 1. júlí og er til tveggja ára. Boðið verður nýja þjálfarann velkominn á Stadio Friuli föstudaginn 6. júní.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.