Arnór Ingvi Traustason leikmaður Malmö kemur inn í landsliðsverkefnið sem framundan er gegn Albaníu og Tyrklandi með mikið sjálfstraust.
Lið hans í Svíþjóð hefur farið vel af stað og situr á toppi deildarinnar með sex stiga forskot að loknum 13 leiki. Eftir brösuga byrjun hefur liðið nú unnið níu af síðustu ellefu leikjum og aðeins tapað einum leik á tímabilinu.

„Það hefur gengið mjög vel. Við erum efstir með sex stiga forskot og þetta lítur mjög vel út. Nú er bara að keyra á þetta. Ég er heilt yfir mjög ánægður með mína spilamennsku og ætla mér að standa mig ennþá betur."
„Það er virkilega gott að koma inn í þessa tvo landsleiki með mikið sjálfstraust, sem er mjög jákvætt," sagði Arnór Ingvi.
Hann segir landsliðið rétt farið að fara yfir lið Albaníu.
„Þetta er hörkugott lið og þetta verður erfiður leikur. Það er óþægilegt að mæta þeim. Þeir eru með sterkt lið og það er ekkert hægt að vanmeta einn né neinn andstæðing, hvað þá þá."
„Við ætlum okkur að ná í þessi sex stig á heimavelli. Við þurfum að byrja á því að vinna Albanana og taka síðan Tyrkina," sagði Arnór Ingvi að lokum.
Viðtalið við Arnór Ingva má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.