Cristiano Biraghi, leikmaður Inter á Ítalíu, gæti farið til Roma eða Sevilla í sumar en Sport Mediaset greinir frá þessu í dag.
Biraghi, sem er 27 ára gamall, hefur spilað afar vel með Inter á þessari leiktíð en hann er á láni frá Fiorentina.
Inter er með forkaupsrétt á Biraghi en félagið ætlar ekki að nýta sér réttinn.
Spænska félagið Sevilla og ítalska félagið Roma hafa mikinn áhuga á Biraghi.
Bæði félög vilja fá hann á láni út næstu leiktíð með möguleika á að kaupa hann.
Biraghi hefur spilað 24 leiki á tímabilinu, gert eitt mark og lagt upp fjögur.
Athugasemdir