Kamerúnski landsliðsmaðurinn Patrick Ekeng lét lífið í leik með liði sínu Dinamo Búkarest í Rúmeníu fyrir fjórum árum síðan. Hann hneig niður skömmu eftir að hafa komið inn sem varamaður.
Ekeng var aðeins 26 ára gamall. Ekeng var fluttur burt með sjúkrabíl en úrskurðaður látinn um tveimur klukkustundum síðar. Hann fékk hjartaáfall.
Í dag var læknir í Rúmeníu dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vanrækslu í tengslum við dauða Ekeng.
Elena Duta, sem var læknir sem fór með sjúkrabílnum, var sakfelld fyrir að framkvæma engar lífgunartilraunir. Ekki er vitað hvers vegna hún gerði það ekki.
Henni er einnig gert að greiða 200 þúsund evrur í skaðabætur og gangast undir 60 klukkustunda samfélagsþjónustu.
The doctor that FAILED to treat Patrick Ekeng after he collapsed on Romanian pitch in 2016 has been handed ... a suspended 18-mth jail term & fined $227,000 for her inaction.
— Piers Edwards (@piers_e) June 5, 2020
Impressed that Romanian court pursued the case.
Baffled by doctor's inaction.https://t.co/rRrVlF2ztj
Athugasemdir