Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 05. júní 2020 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sancho segir sektina vera „algert grín"
Jadon Sancho, leikmaður Borussia Dortmund, er ekki sáttur með sekt sem hann fékk frá þýsku deildinni.

Þýska deildin ákvað að sekta Sancho eftir að hann var myndaður í klippingu heima hjá sér án þess að vera með grímu. Sancho, sem er 20 ára, fékk hárgreiðslumann heim til sín og braut tilmæli heilbrigðisyfirvalda í Þýskalandi.

Liðsfélagi hans, Manuel Akanji, var líka sektaður fyrir sama brot.

Sancho hefur farið á kostum með Dortmund í þýsku deildinni en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United.

Sancho svaraði sektinni á Twitter en hann var ekki sérlega ánægður. Hann eyddi svo tístinu, en í því stóð: „Algert grín."


Athugasemdir
banner