Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 05. júní 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sky: Real Madrid á eftir Lautaro Martinez
Lautaro Martinez fer að öllum líkindum til Spánar
Lautaro Martinez fer að öllum líkindum til Spánar
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Madrid ætlar að berjast við Barcelona um Lautaro Martinez, leikmann Inter en Sky Italia heldur þessu fram í dag.

Barcelona og Inter hafa verið í viðræðum um kaupverð á Martinez síðustu vikur en viðræðurnar hafa gengið illa og Barcelona ekki reiðubúið til að greiða uppsett verð.

Samkvæmt Sky Italia hefur Real Madrid fylgst náið með viðræðunum og er tilbúið til þess að stela Martinez frá Barcelona.

Real Madrid ætlar ekki að reyna við Kylian Mbappe í sumar en Erling Braut Haaland er efstur á blaði. Ef það tekst ekki að fá Haaland þá er Martinez næsti kostur.

Það er talið ólíklegt að Haaland yfirgefi Dortmund eftir aðeins hálft tímabil en hann hefur verið frábær frá því hann kom til félagsins frá RB Salzburg í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner