Fotbolti.net
14.09.26 - 10:47
Víðir Sigurðsson

Hólmbert Friðjónsson er látinn

Hólmbert varð Íslandsmeistari með Keflavík 1964. Hér má sjá forsíðu Faxa frá þeim tíma.

Hólmbert varð Íslandsmeistari með Keflavík 1964. Hér má sjá forsíðu Faxa frá þeim tíma.

Canon

Mynd: Faxi

Hólmbert Friðjónsson fyrrverandi knattspyrnuþjálfari frá Keflavík er látinn, 85 ára að aldri.

Sonarsonur hans, Hólmbert Aron Friðjónsson, leikmaður Gwangju í Suður-Kóreu, skýrir frá andláti afa síns með innilegri kveðju á Facebook.
Hólmbert fæddist 11. mars 1941 og hóf að leika með liði Keflvíkinga í efstu deild sautján ára gamall árið 1958. Hann lék með liðinu til 1965 og spilaði aftur með því 1968 og var í fyrsta Íslandsmeistaraliði Keflavíkur árið 1964. Þá lék hann níu af tíu leikjum liðsins í deildinni og skoraði tvö mörk. Samtals skoraði Hólmbert 11 mörk í 58 leikjum með Keflavíkurliðinu í efstu deild og var jafnframt í liðinu sem vann gömlu 2. deildina árið 1962.

Hólmbert lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 1968 en var þá ráðinn þjálfari Keflavíkurliðsins, aðeins 28 ára gamall. Liðið hafði þá naumlega haldið sæti sínu í efstu deild en undir hans stjórn slógu Keflvíkingar rækilega í gegn árið 1969 og stóðu uppi sem Íslandsmeistarar.

Hann þjálfaði liðið áfram árið 1970 og þá endaði liðið í þriðja sæti, ásamt því að leika tvo eftirminnilega Evrópuleiki gegn enska liðinu Everton.

Hólmbert tók á ný við Keflavíkurliðinu árið 1977, þar sem það endaði í fimmta sæti, og þjálfaði síðan nágrannana í Njarðvík árið eftir þar sem litlu munaði að hann kæmi þeim upp í næstefstu deild í fyrsta skipti.

Hólmbert tók við liði Fram og stýrði því í þrjú ár, 1979 til 1981, og Fram varð bikarmeistari tvö fyrri árin undir hans stjórn. Liðið endaði í sjötta sæti á fyrsta ári Hólmberts en síðan í öðru sætinu tvö seinni árin.

Þá var Hólmbert ráðinn til KR, sem hafði naumlega forðast fall árið 1981. Hann sneri gengi liðsins við og það endaði í þriðja, öðru og fjórða sæti á árunum þremur undir hans stjórn.

Hólmbert sneri aftur til Keflavíkur og þjálfaði sitt gamla félag árin 1985 og 1986 en það endaði í fimmta sæti bæði árin. Síðasta starf hans hjá félagsliði var haustið 1989 þegar hann tók aftur við Keflavíkurliðinu í vonlítilli stöðu á botni efstu deildar og stýrði því í síðustu þremur leikjum tímabilsins þar sem litlu munaði að það héldi sæti sínu.

Hann stýrði liðum sínum samtals í 191 leik í efstu deild karla.

Síðasta starf Hólmberts sem þjálfara var árið 1991 þegar hann þjálfaði 21-árs landslið karla.


Kveðja Hólmberts Arons á Facebook:
Umfjöllun um Hólmbert úr Tímanum þegar hann þjálfaði Fram.

Umfjöllun um Hólmbert úr Tímanum þegar hann þjálfaði Fram.

Canon

Mynd: Tíminn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.