Fotbolti.net
14.09.26 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson

Jaissle: Undirstöðuatriðin klikkuðu - Elanga og Ramsey meiddir

Jaissle: Undirstöðuatriðin klikkuðu - Elanga og Ramsey meiddir
Canon

Mynd: EPA

Matthias Jaissle, þjálfari Newcastle United, svaraði spurningum fréttamanna eftir 4-1 tap gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.
England: Leeds fór illa með Newcastle
TENGT EFNI

England: Leeds fór illa með Newcastle

Newcastle er með fimm stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar og var þetta fyrsta tap liðsins á deildartímabilinu.

„Svona er fótboltinn. Við erum í úrvalsdeildinni og það eru engir auðveldir andstæðingar hér. Ég hef oft sagt í viðtölum að frammistaðan verður svolítið upp og niður á þessu tímabili útaf því að við erum með ungan leikmannahóp og mikið af nýjum mönnum. Í dag spiluðum við illa og það er erfitt að melta þetta tap. Við verðum að halda áfram á okkar braut útaf því að það er stutt í næsta leik," sagði Jaissle.

„Við verðum að vera fljótir að læra og bæta okkar leik. Í kvöld voru ýmis undirstöðuatriði sem klikkuðu."

Nico González miðjumaður Newcastle fór meiddur af velli á 19. mínútu og ákvað Jaissle að gefa hinum 18 ára gamla Sean Steur tækifærið á miðjunni. Hann geymdi hina reynslumeiri Joe Willock og Jacob Ramsey á bekknum.

„Því miður þá var JJ (Jacob Ramsey) ekki hæfur til að spila í dag, hann fann fyrir lærinu í upphitun og því vorum við ekki með annan mann í þessari stöðu. Joe spilar framar á vellinum og við verðum að sýna ungu strákunum okkar traust. Við sáum í dag að þeir þurfa aðeins meiri tíma til að þróa sinn leik.

„Það vantaði upp á líkamlegan styrk hjá okkur í þessum leik. Í úrvalsdeildinni þá verður maður að berjast fyrir hverjum einasta bolta. Undirstöðuatriðin verða að vera í lagi, við lærðum það í dag.

„Ég vil ekki vera með afsakanir en það er erfitt að ná stöðugleika með svona ungt lið sem hefur ekki spilað mikið saman."


Jaissle var að lokum spurður út í fjarveru Anthony Elanga sem var ekki í hóp. Hann segir að Elanga sé meiddur og það líti ekki vel út. Félagið er að bíða eftir niðurstöðu úr sneiðmyndatöku.

Einkunnir Leeds og Newcastle: Miðverðirnir þristaðir
TENGT EFNI

Einkunnir Leeds og Newcastle: Miðverðirnir þristaðir

Jaissle: Undirstöðuatriðin klikkuðu - Elanga og Ramsey meiddir
Canon

Mynd: EPA

Jaissle: Undirstöðuatriðin klikkuðu - Elanga og Ramsey meiddir
Canon

Mynd: EPA

Jaissle: Undirstöðuatriðin klikkuðu - Elanga og Ramsey meiddir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.