14.09.26 - 10:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Er Höskuldur á leið í Val?

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Höskuldur var maður leiksins í bikarúrslitaleiknum og skoraði fyrra mark leiksins gegn Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur síðustu vikurnar verið orðaður við Val en Halldór Árnason, sem þjálfaði Höskuld á árunum 2020-25 hjá Breiðabliki, mun taka við Val eftir tímabilið.
Höskuldur var spurður út í sögusagnirnar í upphafi mánaðar en gaf lítið fyrir þær.
„Nei ekkert frekar en þú. Það er bara einhver æsifréttamennska sem er í gangi, ekkert frá mér um það," sagði Höskuldur í viðtali við Fótbolta.net á lokadegi síðasta mánaðar.

Á föstudagskvöld barst Fótbolta.net ábending um að Höskuldur myndi spila með Val á næsta tímabili og var sú ábending rædd í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag.
„Það voru sögusagnir sem við komum með fyrir nokkrum vikum síðan að hann gæti farið í Val. Nú er það orðið enn háværara," sagði Elvar Geir í þættinum.
„Það var liggur við sagt að þetta væri frágengið í hálfleik í gær (á bikarúrslitaleiknum á föstudag)," sagði Valur Gunnarsson.
„Það er sagt að þetta sé að fara gerast," sagði Elvar.
„Það er mesta „computer says no" sem ég veit um að sjá Höskuld Gunnlaugsson í rauðu," sagði Tómas Þór. „En ég er sammála því að hann hefði gott af því að fá nýja sýn á fótboltann."
Elvar tók þá aftur við: „Ætli það sé ekki auðveldara fyrir hann, ef þetta er að fara raungerast, að fara sem bikarmeistari."
Höskuldur, sem verður 32 ára eftir tólf daga og er uppalinn hjá Breiðabliki, er með skráðan samning við Breiðablik út tímabilið 2027. Viktor Örn Margeirsson, samherji og jafnaldri Höskuldar, hefur einnig verið orðaður við Val.