Sadio Mane leikmaður Liverpool hefur staðfest að hann vilji fara frá félaginu en hann sagði í viðtali í gær að það væri ósk senegölsku þjóðarinnar.
Það hefur ekki farið vel í Liverpool menn og sagði Jose Enrique fyrrum leikmaður liðsins meðal annars að þetta væri versta afsökun sem hann hafði heyrt.
Mane hefur nú tjáð sig um málið og sagði að ummælin sín hafi verið sögð í gríni.
„Ég sagði þetta í gær í léttu gríni og allt í einu var þetta út um allt. Liverpool er félag sem ég ber mikla virðingu fyrir, stuðningsmennirnir hafa tekið mig í fóstur frá fyrsta degi. Hvað varðar framtíðina, við sjáum til," sagði Mane í viðtali við Canal Plus.
Mane á eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool en hann hefur verið sterklega orðaður við Bayern Munchen.