PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Middlesbrough hafnaði tilboði frá Everton
Mynd: Middlesbrough
Sky Sports greinir frá því að Middlesbrough hafnaði kauptilboði frá Everton í miðjumanninn eftirsótta Hayden Hackney.

Ekkert kaupverð er gefið upp en Sky segir að það hafi munað miklu á verðmati félaganna á leikmanninum.

Everton, Tottenham, Nottingham Forest og Crystal Palace eru meðal félagsliða sem hafa verið orðuð við Hackney, sem varð Evrópumeistari með U21 landsliði Englands í fyrra.

Hackney er 23 ára gamall og aðeins með eitt ár eftir af samningi, en talið er að Middlesbrough vilji fá um 20 milljónir punda fyrir hann.

   04.06.2026 18:00
Everton bætist við kappið um Hackney

Slapp
banner
banner