Fotbolti.net
05.07.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Fiorentina nældi í Massimo Ambrosini (Staðfest)

Massimo Ambrosini.

Massimo Ambrosini.

Canon

Mynd: Getty Images

Massimo Ambrosini er genginn í raðir Fiorentina og skrifaði hann undir eins árs samning hjá félaginu.
Ambrosini yfirgaf herbúðir AC Milan nýverið eftir 18 ára veru á San Siro, en þar vann hann allt sem hægt er að vinna í boltanum.

West Ham var sterklega orðað við Ambrosini eftir að hann fór frá Milan, en hann ákvað á endanum að vera áfram í heimalandinu.

Þessi 36 ára gamli miðjumaður er sjöundi leikmaðurinn sem Fiorentina fær í sumar. Joaquin, Marko Babic og Oleksandr Yanokvic komu allir frá Malaga, en einnig gengu þeir Gustavo Munua, Juan Cuadrado og Marcos Alonso í raðir félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.