Fotbolti.net
05.07.13 - 14:58
Magnús Már Einarsson

Wayne Rooney fer ekki frá Manchester United (Staðfest)

Wayne Rooney.

Wayne Rooney.

Canon

Mynd: Getty Images

David Moyes, stjóri Manchester United, hefur staðfest að Wayne Rooney muni ekki yfirgefa herbúðir félagsins í sumar.

Miklar vangaveltur hafa verið í kringum framtíð Rooney síðan hann bað um sölu frá Manchester United í vor.

Moyes hélt sinn fyrsta fréttamannafund í dag og þar staðfesti hann að Rooney verði áfram hjá Manchester United.
,,Wayne er ekki til sölu. Hann er leikmaður Man United og verður áfram leikmaður Man United,\" sagði Moyes á fréttamannafundinum í dag.

,,Ég hef þekkt Wayne síðan hann var 16 ára hjá Everton. Þetta er smá deja vu. Hann hefur æft mjög vel, hann er að komast aftur í gott form og ég hlakka til að vinna með honum.\"

Rooney ræddi við Sir Alex Ferguson undir lok síðasta tímabils og bað um sölu frá Manchester United.

,,Ég veit ekki hvað þessir tveir herramenn sögðu - Sir Alex Ferguson og Wayne Rooney. Þetta var einkasamtal þeirra og ég hlakka bara til að vinna með Wayne.\"

,,Ég get sagt ykkur að Wayne Rooney hefur æft frábærlega síðan ég kom hingað. Wayne verður ekki seldur frá Manchester United. Við höfum rætt nokkrum sinnum saman og það sem gerðist í fortíðinni er búið núna.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.