05.07.14 - 13:00
Eyþór Ernir Oddsson
Hazard á lán til Mönchengladbach (Staðfest)

Thorgan Hazard

Mynd: Getty Images

Thorgan Hazard

Mynd: Getty Images

Thorgan Hazard, miðjumaður Chelsea, hefur verið lánaður til þýska félagsins Borussia Mönchengladbach út næsta tímabil.
Thorgan, sem er 21 árs bróðir Eden Hazard hjá Chelsea, spilaði á láni hjá Zulte Waregem í heimalandi sínu, Belgíu, á síðustu tveimur leiktíðum.
Á þeim tveimur leiktíðum spilaði hann reglulega í deild og Evrópudeildinni, spilaði sinn fyrsta landsleik og fékk gullskóinn í Belgíu í janúar, en þau verðlaun fær besti leikmaður belgísku deildarinnar.

Heimild: Chelsea FC