Fotbolti.net
05.07.16 - 18:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Sime Vrsaljko til Atletico Madrid (Staðfest)

Vrsaljko er kominn til Atletico

Vrsaljko er kominn til Atletico

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid er búið að staðfesta kaup á bakverðinum Sime Vrsaljko frá Sassuolo á Ítalíu.
Vrsaljko er króatískur bakvörður, en hann spilaði með Króatíu á EM í Frakklandi. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Atletico.

Kaupverðið á honum er ekki gefið upp, en sjálfur er hann mjög spenntur fyrir nýju verkefni.

„Að spila fyrir Atletico er stór ákvörðun fyrir mig. Ég er mjög ánægður,\" sagði hann í samtali við heimasíðu Atletico.

Króatinn hóf feril sinn hjá Dinamo Zagreb í heimalandinu, en síðustu ár hefur hann spilað á Ítalíu.

FICHAJE. ¡Es oficial! ¡Vrsaljko ha firmado por 5 temporadas!: https://t.co/NMwBZoOXtP #BienvenidoVrsaljko pic.twitter.com/G6F4QLdk4u

— Atlético de Madrid (@Atleti) July 5, 2016

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.