Fotbolti.net
05.07.16 - 12:08
Þorsteinn Haukur Harðarson

Swansea kaupir Leroy Fer (Stadfest)

Swansea kaupir Leroy Fer (Stadfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur fest kaup á hollenska miðjumanninum Leroy Fer en hann kemur til liðsins frá QPR.
Leikmaðurinn, sem er 26 ára gamall, þekkir vel til hjá Swansea enda lék hann sem lánsmaður hjá félaginu seinni hluta seinasta tímabils.

Hann þótti standa sig vel hjá Swansea sem í kjölfarið ákvað að kaupa leikmanninn. Kauðverðið hefur ekki verið gefið upp en samningurinn er til þriggja ára.

Fer hefur einnig spilað með Feyenoors, Twente og Norwich auk þess sem hann á að baki 11 leiki fyrir landslið Hollands.

Gylfi Þór Sigurðsson spilar með Swansea og verða Gylfi og Fer því liðsfélagar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.