Fotbolti.net
05.07.16 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Van der Wiel til Fenerbache (Staðfest)

Van der Wiel er mættur til Tyrklands

Van der Wiel er mættur til Tyrklands

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn hollenski Gregory van der Wiel er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Fenerbache í Tyrklandi.
Van der Wiel kemur til Fenerbache frá Paris Saint-Germain og hann er spenntur fyrir skiptunum.

„Mjög ánægður með að vera hluti Fenerbache fjölskyldunni! Get ekki beðið eftir því að klæðast treyjunni á vellinum,\" skrifaði van der Wiel á Twitter.

Van der Wiel sem er 28 ára gamall bakvörður gekk til liðs við PSG frá Ajax árið 2012 og lék meira en 128 leiki fyrir franska stórliðið.

Fenerbache endaði í 2. sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Fenerbahçe ailesinin parçası olmaktan dolayı çok mutluyum. Bu formayı sahada giymek için sabırsızlanıyorum💛💙 #vdw23 pic.twitter.com/GSsBQkICbk

— Gregory van der Wiel (@Gvanderwiel) July 4, 2016

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.