Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. júlí 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Ödegaard til Real Sociedad á láni (Staðfest)
Martin Ödegaard.
Martin Ödegaard.
Mynd: Getty Images
Real Sociedad hefur fengið Martin Ödegaard á láni frá Real Madrid út þetta tímabil.

Ödegaard þótti á sínum tíma mesta efni evrópskrar knattspyrnu og var keyptur til Real Madrid árið 2015. Hann er tvítugur og hefur aðeins komið við sögu í tveimur keppnisleikjum með Real Madrid.

Hann spilaði 43 leiki þegar hann var lánaður til Heerenveen í eitt og hálft tímabil og sprakk svo út hjá Vitesse Arnhem á síðasta tímabili. Þar gerði hann 11 mörk í 37 leikjum á síðasta tímabili.

Ödegaard verður 21 árs í desember en hann á 18 leiki að baki fyrir A-landslið Noregs.

Real Sociedad endaði í 9. sæti La Liga í vor og tekur því ekki þátt í Evrópukeppni á komandi tímabili. Adnan Januzaj, Willian Jose og Asier Illarramendi eru meðal leikmanna félagsins.

Athugasemdir
banner
banner