Real Madrid hefur lánað vinstri bakvörðinn Sergio Reguilon til Sevilla fyrir komandi tímabil.
Hinn 22 ára gamli Reguilon ólst upp hjá Real Madri og náði að hirða byrjunarliðssæti af Marcelo á síðasta tímabili þann tíma tímabilsins sem Santiago Solari var við stjórnvölinn.
Real Madrid keypti vinstri bakvörðinn Ferland Mendy frá Lyon á dögunum og því hefur Zinedine Zidane ákveðið að leyfa Reguilon að fara á lán.

Hjá Sevilla mun Reguilon leika undir stjórn Julen Lopetegui sem byrjaði síðasta tímabil sem þjálfari Real Madrid áður en hann var rekinn síðastliðið haust.
SJá einnig:
Fékk bolamynd með Bale árið 2014 - Er núna í byrjunarliði Real
Athugasemdir