Það er mjög skemmtileg stemning í kringum íslenska landsliðið núna þegar stutt er í Evrópumótið.
Það er létt yfir hópnum eins og mátti sjá það augljóslega þegar fréttamaður Fótbolta.net reyndi að taka viðtal við Amöndu Andradóttur, leikmann liðsins, á dögunum.
Á meðan fréttamaður reyndi að taka viðtalið, þá var Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, miðjumaður landsliðsins, búin að setja stærsta hátalarann á svæðinu í botn.
Lagavalið? Jú, það var farið í gamla skólann; SexyBack með Justin Timberlake og Timbaland.
Þetta gerist eftir rúmlega tvær mínútur í myndbandinu hér fyrir neðan.
Hérna í Þýskalandi eru allir léttir, ljúfir og kátir. Ísland á fyrsta leik á EM gegn Belgíu eftir fimm daga.
Athugasemdir