Fotbolti.net
05.07.26 - 16:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Toure til liðs við Newcastle (Staðfest)

Toure til liðs við Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle

Fílabeinsstrendingurinn Bazoumana Toure er genginn til liðs við Newcastle frá Hoffenheim.

Sky Sports greinir frá því að Newcastle borgar 42 milljónir punda fyrir hann. Hoffenheim fær ákveðna prósentu af kaupverði ef Newcastle selur hann.
Toure er tvítugur vængmaður en hann kom við sögu í þremur leikjum hjá Fílabeinsströndinni á HM í sumar.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað. Það hefur verið draumur síðan ég var ungur að spila í úrvalsdeildinni fyrir stórt lið eins og Newcastle, " sagði Toure.

„Newcastle er eins og fjölskylda sem mun hjálpa mér að sýna mitt besta á vellinum. Ég mun gera mitt besta alla daga fyrir þessa treyju."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.