Fotbolti.net
05.08.14 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Cristian Gamboa til West Brom (Staðfest)

Cristian Gamboa spilaði vel á HM.

Cristian Gamboa spilaði vel á HM.

Canon

Mynd: Getty Images

Cristian Gamboa hefur fengið atvinnuleyfi og er hann formlega orðinn leikmaður West Bromwich Albion. West Brom hafnaði í sautjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Gamboa er varnarmaður landsliðs Kosta Ríka en hann kemur frá Rosenborg og hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska félagið.

Alan Irvine, stjóri West Brom, segist hafa verið heillaður af frammistöðu Gamboa á HM.

Þessi 24 ára leikmaður getur bæði spilað sem hægri bakvörður og miðjumaður. Irvine hugsar hann sem varnarmann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.