05.08.14 - 13:07
Elvar Geir Magnússon
Jack Rodwell til Sunderland (Staðfest)

Jack Rodwell kampakátur með fimm ára samninginn.

Mynd: Sunderland

Jack Rodwell kampakátur með fimm ára samninginn.

Mynd: Sunderland
Sunderland hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Jack Rodwell frá Manchester City. Þessi 23 ára eftirsótti leikmaður skrifaði undir fimm ára samning en kaupverð er ekki gefið upp.
Rodwell kom upp úr unglingastarfi Everton og lék sinn fyrsta aðalliðsleik 16 ára gamall þegar hann spilaði gegn AZ Alkmaar í Evrópudeildinni í desember 2007.
Rodwell kom upp úr unglingastarfi Everton og lék sinn fyrsta aðalliðsleik 16 ára gamall þegar hann spilaði gegn AZ Alkmaar í Evrópudeildinni í desember 2007.
Rodwell var fastamaður hjá Everton áður en hann var keyptur til Manchester City sumarið 2012. Hann náði ekki að festa sig í sessi hjá City og var í litlu hlutverki síðasta vetur.
Hann á þrjá A-landsleiki að baki fyrir England.
Hann á þrjá A-landsleiki að baki fyrir England.
