Fotbolti.net
05.08.14 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Jason Davidson til West Brom (Staðfest)

Jason Davidson í leik með Ástralíu.

Jason Davidson í leik með Ástralíu.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur gengið frá kaupum á ástralska landsliðsmanninum Jason Davidson frá Heracles í Hollandi.

Þessi 23 ára vinstri bakvörður hefur skrifað undir tveggja ára samning.
Hann lék með Ástralíu á HM og spilaði alla leiki liðsins.

Davidson er sjöundi leikmaðurinn sem WBA fær í sumar en áður komu Craig Gardner, Joleon Lescott, Chris Baird, Brown Ideye, Sebastien Pocognoli og Andre Wisdom.

„Það er mikið gleðiefni að hafa fengið Jason. Þetta er kraftmikill leikmaður sem er góður varnarmaður og öflugur sóknarlega. Hann mun berjast um stöðuna við Sebastien Pocognoli,\" segir Alan Irvine, stjóri West Brom.

Davidson hefur einnig leikið fyrir Paços de Ferreira í Portúgal og Hume City í heimalandinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.