Angel Gomes til Lille (Staðfest) - Fer beint á lán

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sóknarmiðjumaðurinnn Angel Gomes hefur samið við franska félagið Lille eftir að samningur hans hjá Manchester United rann út í síðasta mánuði.
Hinn 19 ára gamli Gomes mun fara beint frá Lille til portúgalska félagsins Boavista á láni.

Gomes ólst upp hjá Manchester United og var einungis 16 ára þegar hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði félagsins í maí 2017.
Eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við í desember 2018 fékk Gomes einungis tækifæri í átta leikjum og því ákvað hann að fara frá félaginu.
Gomes er fæddur og uppalinn á Englandi og á að baki 34 leiki og 10 mörk fyrir yngri landslið Englands. Þess má til gamans geta að Nani, fyrrum leikmaður Manchester United, er guðfaðir Gomes.