Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 05. ágúst 2020 10:22
Magnús Már Einarsson
Man Utd finnst verðmiði Dortmund á Sancho óraunhæfur
Sancho fagnar marki.
Sancho fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Sky Sports segir frá því í dag að Manchester United ætli ekki að gefa eftir þegar kemur að því að semja um kaupverð fyrir Jadon Sancho, kantmann Borussia Dortmund.

Sancho hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarna daga og leikmaðurinn er sjálfur sagður nálægt því að ná samkomulagi við félagið.

Manchester United á hins vegar eftir að semja um kaupverð við Dortmund. Þýska félagið vill fá 108 milljónir punda fyrir Sancho en United telur það óraunhæfan verðmiða eftir afleiðingar kórónuveirunnar á fjárhag félaga.

Sancho kom til Dortmund frá Manchester City á 7,2 milljónir punda fyrir þremur árum og United vill að þýska félagið lækki verðmiða sinn.

Samkvæmt frétt Sky gæti United reynt við aðra leikmenn ef Dortmund lækkar ekki verðmiðann á Sancho á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner