05.08.21 - 08:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anna Björk til Inter Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Anna Björk Kristjánsdóttir var í morgun tilkynnt sem nýr leikmaður Inter Milan á Ítalíu.
Miðvörðurinn lék með franska liðinu Le Havre í vetur og Selfossi í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar.
Miðvörðurinn lék með franska liðinu Le Havre í vetur og Selfossi í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar.
Inter endaði í áttunda sæti ítölsku deildarinnar í fyrra. Anna Björk skrifar undir eins árs samning við félagið.
Anna Björk er 31 árs og hefur spilað með KR, Stjörnunni, sænsku liðunum Örebro og Limhamn Bunkeflo og hollenska liðinu PSV á sínum ferli ásamt þeim liðum sem þegar höfðu verið nefnd.
Hún á 44 A-landsleiki að baki, þar af einn á þessu ári gegn Ítalíu í apríl.

🚨 | ANNUNCIO
— Inter Women (@Inter_Women) August 5, 2021
Anna Björk Kristjánsdóttir è una nuova giocatrice dell'Inter ⚫🔵👇https://t.co/xb1ZtuFlzW