Fotbolti.net
05.08.21 - 17:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Babb í bátinn: Bomba í máli Messi

Lionel Messi.

Lionel Messi.

Canon

Mynd: Getty Images

Það hefur verið ávallt talað um það í sumar að Lionel Messi muni skrifa undir nýjan samning við Barcelona, en það eru stórar fréttir í málinu í spænskum fjölmiðlum í kvöld.
Messi er samningslaus en hefur verið í viðræðum við Barcelona síðustu vikur.

Marca segir frá því í kvöld að það hafi komið babb í bátinn og að Messi hafi aldrei verið eins langt frá því að skrifa undir, og hann er núna.

Fjölmiðlamaðurinn tekur undir þetta og skrifar að um bombu sé að ræða. Messi sé ekki að fara að skrifa undir; hann sé ekki sáttur með stöðuna innan félagsins og ekki sáttur með leikmannahópinn.

Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum. Félagið hefur tekið margar slæmar ákvarðanir síðustu ár og er kórónuveirufaraldurinn búinn að ýta undir vandræðin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.