05.08.21 - 19:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grealish í Man City (Staðfest)

Í treyju númer tíu.

Mynd: Man City

Í treyju númer tíu.

Mynd: Man City
Manchester City er búið að staðfesta komu Jack Grealish til félagsins. Þetta eru dýrustu viðskipti í sögu enska boltans; City borgar Aston Villa 100 milljónir punda fyrir Grealish.
„Man City er besta lið landsins og með stjóra sem er talinn sá besti í heimi. Þetta er draumur að rætast," segir Grealish.
Grealish er 25 ára gamall og var einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Hann er uppalinn í Aston Villa og hefur spilað þar allan sinn feril, fyrir utan eitt tímabil þar sem hann var á láni hjá Notts County.
Grealish fær treyju númer 10 hjá Manchester City.
City er að reyna að ganga frá kaupum á Harry Kane, sóknarmanni Tottenham. Þá er spurning hvort félagið reyni að fá Lionel Messi, fyrst hann verður ekki áfram hjá Barcelona.
City er ríkjandi Englandsmeistari en félagið hefur aldrei unnið Meistaradeildina áður.