Fotbolti.net
05.08.21 - 20:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Haukar fá Færeying og Bandaríkjamann (Staðfest)

Terrance William Dieterich þekkir hvern krók og kima í Hafnarfirðinum.

Terrance William Dieterich þekkir hvern krók og kima í Hafnarfirðinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar hafa bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin sem framundan eru í 2. deild karla.
Hjalti Kárason Djurhuus er 23 ára gamall Færeyingur sem kemur frá EB / Streymur í heimalandinu. Þar spilaði hann 13 leiki í efstu deild Færeyja á þessu ári.


Hann er uppalinn í HB og hefur spilað í efstu deild Færeyja frá árinu 2016.

Hann getur leyst ýmsar stöður; miðju, djúpan á miðju og hafsent. Hann kemur til með að styrkja lið Hauka, án efa.

Haukar hafa einnig fengið bandaríska markvörðinn Terrance William Dieterich. Hann er reyndur markvörður sem þekkir félagið vel eftir að hafa spilað með Haukum frá 2015 til 2017. Hann hefur einnig spilað með Tindastóli, Gróttu og Stjörnunni hér á landi. Síðast lék hann hér á landi með Stjörnunni 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.