Fotbolti.net
05.08.21 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd lánar Pellistri aftur til Alaves (Staðfest)

Pellistri

Pellistri

Canon

Mynd: Getty Images

Facundo Pellistri mun spila með Deportivo Alaves á komandi leiktíð. Hann kemur á láni frá Manchester United.

Pellistri er aðeins 19 ára, en hann kom til Man Utd fyrir síðasta tímabil frá Peñarol í heimalandinu, Úrúgvæ. United greiddi tæpar 10 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Hann fer aftur til Alaves því hann var lánaður til félagsins seinni hluta síðustu leiktíðar og þótti standa sig með ágætum.

Pellistri skoraði annað af mörkum Man Utd í æfingaleik gegn Derby þann 18. júlí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.