05.08.21 - 18:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi farinn frá Barcelona (Staðfest)

Farinn.

Mynd: Getty Images

Farinn.

Mynd: Getty Images
Þau risastóru tíðindi voru að berast að Lionel Messi sé búinn að yfirgefa herbúðir Barcelona.
Við sögðum frá því fyrir klukkutíma síðan að það væri komið babb í bátinn.
Messi varð samningslaus 30. júní síðastliðinn en hefur verið í viðræðum við Börsunga um nýjan samning síðustu vikur. Miðað við fréttir víðast hvar þá hafa viðræðurnar gengið vel, þangað til í dag.
Það kom upp babb í bátinn og náðust samningar ekki. Messi er því í leit að öðru félagi, formlega.
Messi er 34 ára gamall og einn besti fótboltamaður sögunnar. Hann hefur allan sinn feril spilað með Barcelona. Það mun breytast fyrir næsta tímabil.
Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum. Félagið hefur tekið margar slæmar ákvarðanir síðustu ár og er kórónuveirufaraldurinn búinn að ýta undir vandræðin. Útlitið er alls ekki gott hjá félaginu, núna þegar helsta goðsögn í sögu hverfur á braut.