Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 05. ágúst 2022 11:56
Elvar Geir Magnússon
Duffy lánaður til Fulham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Írski miðvörðurinn Shane Duffy er genginn í raðir Fulham á láni frá Brighton út tímabilið. Þessi þrítugi leikmaður er sjötti maðurinn sem gengur í raðir nýliða Fulham.

Marco Silva, stjóri Fulham, hefur þegar sótt Bernd Leno, Joao Palhinha, Andreas Pereira, Kevin Mbabu og Manor Solomon.

Duffy var á láni hjá Celtic tímabilið 2020-21 en lék með Brighton á síðasta tímabili.

Hann vildi fá meiri spiltíma en Graham Potter, stjóri Brighton, gat ekki lofað honum byrjunarliðssæti

Duffy er fyrirliði írska landsliðsins.


Athugasemdir
banner
banner