Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 05. ágúst 2022 18:44
Brynjar Ingi Erluson
Gini Wijnaldum til Roma á láni frá PSG (Staðfest)
Mynd: Heimasíða Roma
Hollenski miðjumaðurinn Gini Wijnaldum mun spila með Roma á láni frá Paris Saint-Germain á komandi leiktíð. Ítalska félagið greindi frá félagaskiptunum á samfélagsmiðlum í kvöld.

Wijnaldum, sem er 31 árs gamall, kom til PSG á frjálsri sölu frá Liverpool á síðasta ári en tókst engan veginn að finna sig í franska boltanum.

Blaðamenn í Frakklandi sögðu þetta slökustu kaup tímabilsins en hann mun nú reyna fyrir sér á Ítalíu.

Hann skrifaði í dag undir eins árs lánssamning við félagið og á Roma möguleika á að gera félagaskiptin varanleg.

Jose Mourinho, þjálfari Roma, ætlar sér stóra hluti með liðið á komandi tímabili en hann hefur einnig fengið þá Paulo Dybala, Nemanja Matic, Zeki Celik og Mile Svilar í sumarglugganum.


Athugasemdir
banner
banner