Riqui Puig hefur yfirgefið Barcelona og gert samning til ársins 2025 við LA Galaxy í MLS deildinni í Bandaríkjunum.
Puig er 22 ára gamall spænskur miðjumaður sem hefur verið á mála hjá aðalliði Barcelona í fjögur ár. Á þessum tíma hefur hann leikið 42 leiki með félaginu.
Hann náði aldrei að festa sig í sessi og spilaði mest á síðasta tímabili, þá fimmtán leiki í spænsku deildinni.
LA Galaxy fær leikmanninn fríttt. Liðið er 9. sæti Vesturdeildarinnar en liðið hafnaði í 8. sæti á síðustu leiktíð.
Riqui Puig is a 𝔊 💙🤍💛
— LA Galaxy (@LAGalaxy) August 4, 2022
The #LAGalaxy sign Spanish midfielder @RiquiPuig from FC Barcelona.
📰 https://t.co/hsV2rdtxmD pic.twitter.com/mR8Hm3qmi2
Athugasemdir